Morgunstund
Búinn að eiga yndislega morgunstund með konunni og dóttur (Brynleifur gisti hjá vini sínum). Steikti mér beikon og egg sem ég át með avocado (já ég hangi en í þessu keto). Svo er það bara hefðbundin kaffidrykkja og fréttalestur. Náði líka loksins að laga tölvuna sem er búin að vera höktandi síðan ég uppfærði stýrikerfið í henni. Henti út Office 2011 og keyrði einhverjar uppfærslur og nú gengur allt smurt. Núna ætla ég að skella mér í ræktina og svo kíkir mamma við um hádegið.
Stefni líka að því að klára eina mynd á sýninguna í dag....
Stefni líka að því að klára eina mynd á sýninguna í dag....
Ummæli