Góður vinnustaður


Ég get birt þessa mynd þar sem ég mun ekki setja hana á sýninguna. Ætti kannski að reyna að mála hana aftur því mér finnst vænt um mótífið.

Á Hótel Reynihlíð var gott að vinna. Þó Pétur hótelstjóri hafi ekki verið allra, þá mátti hann eiga það að hann treysti okkur unga fólkinu, allavega mér og mínum vinum. Reyndist okkur prýðilega.

Ég var svo heppinn að ná að vinna þarna á þeim tíma sem Reynihlíðarfjölskyldan var mest öll eitthvað involveruð í reksturinn. Þetta var sannkallað fjölskyldufyrirtæki.

Nú er þetta allt komið í eigu stórrar hótelkeðju með höfuðstöðvar í Reykjavík. Mér skilst að þeir eigi flest húsin á hóteltorfunni. Ætli Víðihlíð og fjárhúsin séu ekki það eina sem situr eftir í eigu heimamanna?

En þetta er þróunin sem á sér stað í gömlu góðu sveitinni minni. Nýja auðlindin streymir um svæðið og þeir sem eiga eitthvað undir sér (land) reyna að kasta út nótinni og fanga þessa spriklandi túrista.

Þetta er skiljanlegt upp að vissu marki en leiðinlegt hvað sumir virðast ætla að forherðast í þessu brjálæði. Sumir eru orðnir hálf klikkaðir af græðgi og sturlaðir af frekju (ég er ekkert að tala um þetta út frá Hótel Reynihlíð sérstaklega).

Gamla góða sveitin sem ég vil muna var malavegir og pallbílar sem maður keyrði með byssu á milli sætanna. Sleðaferðir til að vitja um netin í -20°C með Viceroy í brjóstvasanum. Jólagjafir keyptar á þorláksmessu í Selinu.

Þegar ég flutti aftur í sveitina mína 2012 þekkti ég hana ekki alveg aftur og mér leið eins og gesti. Ég er ekki svo barnalegur að halda að allt hefði geta staðið óbreytt, en hefði viljað sjá málin þróast á annan veg.

Ólafur Páll Jónsson heimspekingur, sem var nú einu sinni næturvörður á Hótel Reynihlíð og þá gjarnan kallaður Lassi, sagði í sjónvarpsviðtali um daginn "við verðum að læra að lifa innan ramma náttúrunnar", og hafði þar lög að mæla.

Í Mývatnssveit ætla menn ekki að lifa innan ramma náttúrunnar, heldur breyta henni og fórna fyrir stundarhagsmuni. Allt er falt fyrir peninga, óðul feðranna, menningarverðmæti, vinátta og félagsleg tengsl... hver býður best?

Komandi kynslóðir munu þurfa að súpa seyðið af heimsku þessara kynslóða.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap