Sköpun


 Það fæddust einhverjar myndir síðasta sólahring. Var allur í Vindbelg, fyrst í vetrarham en það gekk ekkert. Skipti um árstíð og þá kom ein ágæt. Ætla að senda hana suður yfir heiðar til vinar sem hefur átt erfiða daga upp á síðkastið. Þegar manni líður illa og er að væla yfir eigin hlutskipti getur maður yfirleitt alltaf fundið einhvern annan sem hefur það verra.


Svo kom þessi skissa af Dagbjörtu Lóu að labba heim af leikskólanum í Mývatnssveit. Ekkert til að ramma inn en samt stemmning í henni.

Annars er ég að bíða eftir að Þórðu pikki mig upp og við ætlum að kíkja á tónleika með Helga og Hljóðfæraleikurunum á Kaffi Kú. Hef ekki farið á tónleika með H&H síðan ég kynntist Guðrúnu fyrir sléttum 10 árum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap