Myndir
Þessi stolti strákur missti fyrstu tönnina sína 10 dögum eftir 7 ára afmælisdaginn. Hef held ég ekki séð glaðara og stoltara barn á ævinni.
Morgungangan í vinnuna getur verið hálfgerð heilun. Hlusta yfirleitt á Rás 1 á leiðinni en í morgun setti ég á einhverja slökunartónlist og reyndi að hreinsa hugann fyrir vinnudaginn. Held það hafi tekist.
Keypti 2 kg. af gulrótum úr Kelduhverfi í dag. Þetta kostaði heilar 600 krónur...... algert brjálæði.
Fórum í bústað til Hönnu Kötu og Davíðs. Áttum ljúfa stund með börnunum og ekki skemmdi útsýnið frá Vaðlaheiðinni yfir á Akureyri. Þetta var old school sumarbústaður og mér leið vel í honum. Gæti alveg hugsað mér að búa í litlum svona bústað ef ég væri einn. Ég reyndar bjó í sumarbústað í 6 mánuði á Hólum árið 2003. Það var fínt.
Kalla þessa mynd "Systkinakærleikur". Þau láu upp í sófa og Brynleifur spurði systur sína hvort hann mætti knúsa hana. Það er ótrúlegt hvað þau eru góðir vinir þó það séu rúmlega 3 ár á milli þeirra. Spurning hvað það endist lengi?
Man ekki afhverju ég tók þessa mynd? Kannski til að sýna framtakssemina hjá Dabjörtu Lóu í eldhússtörfunum? En þetta er stofan okkar. Þrjú málverk eftir Gene heitinn til vinstri, málverk af Dagbjörtu Lóu til hægri, spegill til að fela göt á vegg, blóm og guli stóllinn sem er eiginlega grænn.
Þessi stelpa er algerlega óborganlegur karakter. Meinstríðin, húmoristi, brosmild, alger brasari, hörkudugleg og klár. Ég segi þetta ekki bara vegna þess að ég sé pabbi hennar. Spyrjið bara ömmu hennar og nöfnu....
Önnur mynd úr bústaðnum. Davíð að úthugsa hvað hann á að segja næst, Brynleifur með störu og Hanna Kata eitthvað að stjana við okkur.
Þessi mynd er tekin sama morgun og við fórum í heimsókn til Davíðs og Hönnu Kötu. Ég fór að ræða þetta við Davíð og hann hafði líka orðið vitni af þessu þegar hann drakk morgunkaffið í bústaðnum. Það var hreinlega eins og búið væri að kveikja á Súlunum. Skilar sér nú samt ekki svo vel á þessa mynd.
Síðasta myndin núna. Útsýnið af skrifstofunni mynni. Ég held að það sé óhætt að segja að þetta séu forréttindi enda stend ég oft upp og geng að glugganum.
En ástæðan fyrir að ég set inn þessar myndir eru kannski bara hálfgerð fráhvörf af FB. Maður er svo vanur að geta deilt myndunum sínum að manni finnst hálf skrítið að taka myndir og geyma þær bara í símanum.
Ummæli