Kiðlingur
Hef aðeins verið að mála en er ekki alveg kominn í gang. Þó þetta þokist eitthvað í áttina hjá mér eru samt aðrir hlutir sem hafa átt huga minn og ég þarf að klára nokkur mál áður en ég fer í þetta á fullu. Eitt af því er grein eftir Carl Jung sem ég er að þýða. Ég las eftir hann gamla ritgerð og hún heillaði mig alveg. Ef mér tekst vel til með þýðinguna hugsa ég að ég reyni að fá hana birta einhversstaðar. Svo set ég hana að sjálfsögðu hingað inn við tækifæri.
Keto gengur fínt. Maður léttist hægt og rólega og líður prýðilega. Finn samt í raun engan stórkostlegan mun á mér við þetta. Eins og margar svona tilraunir sem maður gerir, þá verður maður býsna þreyttur á hvað þetta er einhæft. Egg, salat, brokkolí, kjöt, fiskur og fitur. Sakna þess að geta ekki borðað rótargrænmeti og korn. En tíminn flýgur og það verður kominn 15. nóv áður en ég veit af.
Ummæli