Keto flu
Dagur 4 næstum liðinn í Keto tilrauninni minni. Strax búinn að léttast og manni líður einhvernveginn eins og maður sé strax orðinn skornari (sem tengist sennilega bara vökvatapi). Dagur 1 og 2 voru fínir en í gær var ég orðinn eitthvað hálf orkulaus í hádeginu og tussulegur svona yfirleitt seinnipartinn. Síðan tók ég sæmilega erfiða crossfit æfingu í hádeginu í dag og eftir það er ég búinn að vera voðalega lélegur eitthvað þrátt fyrir góða máltíð og er ábyggilega að upplifa það sem kallast keto flensa. Helstu einkenni eru:
- Höfuðverkur (tékk)
- Svimi (tékk)
- Krampar og aumir vöðvar (bara smá strengir held ég)
- Velgja (vottur af henni í augnablikinu)
- Þreyta (tékk)
- Skapsveiflur, pirringur og matarfýsn
- Magaverkir og hægðatregða
- Heilaþoka (tékk)
Skora 4,5 af 8 og greini mig hér með keto flensu. Ég man eftir að hafa upplifað eitthvað svipað þegar við Guðrún tókum eitthvað Insulin Reset Diet en ég man bara ekki alveg hvað það stóð lengi yfir eða hvort ég losnaði nokkurn tíman alveg við það. Ef þetta verður ekki komið í lag á degi 6 þá bæti ég einhverjum grófum kolvetnum inn í matseðilinn. Ég nenni ekki að vera eins og lyfjaður aumingi stóran hluta af deginum.
Þangað til næst,
Bjarni
Ummæli