Eitt og annað



Búinn að hafa samband við Örninn og fá verð í Trek 520 ferðahjól. Ef ég tek þátt í forpöntun borga ég 140 þúsund og fæ það afgreitt í mars. Pínu erfitt að geta ekki fengið það afhent strax þar sem mig vantar samgöngutæki en þetta er bara of gott verð til að sleppa þessu. Á bara eftir að staðfesta pöntunina og fara endanlega yfir heimilisbókhaldið. Eftir að hafa legið yfir þessu held ég að þetta séu sniðugustu kaupin fyrir mig. Eins mikið og mig langar í racer, þá bara nýtist þetta miklu miklu betur.

Við Brynleifur erum strax farnir að plana 2-3 daga hjólaferð næsta sumar. Ætlum að gista í Kristnesskógi eina nótt (ef Brynleifur fær að ráða) og svo langar mig reyndar að hjóla alla leið inn að Úlfá þar sem Jónas Jónasson forfaðir okkar var fæddur (1856). Á þeim tíma var þetta innsti bærinn í Eyjafjarðardal, fyrir innan Tjarnir og Leyningshóla. Maður skyldi ætla að vist á þessum stað hafi getað verið nokkuð harðneskjuleg. Þetta verður reyndar býsna langt ferðalag fyrir þann stutta, yfir 50 km og því kannski best að fá far til baka.

Þó ég reyni eftir fremsta megni að njóta líðandi stundar þá verð ég að segja.... "djöfull hlakka ég til næsta sumars".

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap