Vinnustofa

Útsýnið úr kaffistofunni sem er við hliðina á herberginu sem ég verð í.

Er að fara niður í Slipp að taka við lyklum af nýrri vinnustofu eftir matinn. Útsýnið úr Hjalteyrargötu 2 er ekki af lakara tagi, og spurning hvort maður eigi eftir að mála eitthvað annað en báta?

Var í atvinnuviðtali í gær sem ég er mjög spenntur fyrir. Ef ég fæ þá vinnu er ég aldeilis að skipta um starfsvettvang og gæti verið fyrsta skrefið inn á nýjar brautir þar sem ég fer að lifa lífinu eftir mínu nefi. Ég vitna hér í frábæra grein Auðar Jónsdóttur í Kjarnanum í dag:

Lífið snýst um hug­rekki, frá upp­hafi... til enda, hugs­aði ég á leið­inni frá henni – í síð­asta sinn. Að vera eða ekki vera – þar liggur efinn. Að þora að vera getur meira segja verið að deyja eins og hún amma mín.
Knús á ykkur öll og munið að þegar öllu er á botninn hvolt er það aðeins ástin sem skiptir máli.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap