Komin heim

Mynd eftir Alvaro Castagnet

Ég er komin heim eftir Reykjavíkurferðina og maður er eitthvað hálf slæptur. Hlakkaði mikið til að komast heim að mála en nú er ég eiginlega of þreyttur til þess. Ég ætla þess í stað að leggjast upp í rúm og lesa í Kötu eftir Steinar Braga. Ég er kominn aðeins áleiðis og hún rígheldur mér.

Í síðustu viku lauk ég við Spámennina í Botnleysufirði eftir Kim Leine og það eina vonda við þá lesningu er að ég þekki engan sem er búinn að lesa hana. Ég hlakka svo til að ræða hana við einhvern.

Ég setti hér inn að gamni eina grófa skissu frá Alvaro Castagnet sem er töframaður með vatnsliti. Þetta er svo einfalt hjá honum. Hann hefur svo mikið vald yfir því sem hann er að gera, á annars mjög frjálslegan hátt, að það er ótrúlegt.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap