Ritstörf
Nú hef ég tekið mér 3 daga hvíld frá vatnslitun en er að hugsa um að gera eitthvað á eftir. Langar að gera eitthvað meira frjálsegt í anda við lóurnar sem ég gerði síðast. Annars fór ég með allar myndirnar til Akureyrar á föstudaginn, lét skanna þær og valdi ramma. Ég held að þetta verði ágæt sýning.
Annars hefur sótt töluvert á mig að skrifa eitthvað uppá síðkastið en ég kem mér ekki í það. Ég er með hugmyndir fyrir smásögur og jafnvel prósa en það er svo djúpt á því að ég þarf eiginlega að loka mig alveg af til að ná einhvejru fram. Þetta er eins og pússluspil sem hringsnýst í hausnum á mér og ég þarf að einbeita mér við að ná í eitt og eitt og raða því saman í einhverja heild.
Það verður því líklega ekki mikið úr því á næstunni.

Ummæli