Hrakningar og heiðarvegir

Ég hef verið að lesa Hrakningar og heiðarvegi sem Pálmi Hannesson rektor og Jón Eyþórsson veðurfræðingur tóku saman um miðja síðustu öld. Ég hef ægilega gaman af því að lesa þetta og er hálfnaður með bók númer tvö, ég held að þá eigi ég 2 eftir. Ég les þetta yfirleitt í sófanum og hef þá gjarnan við höndina stóra kortabók til að skoða staðhætti- það gefur sögunum aukinn kraft og maður fræðist um landið sitt í leiðinni.

Eins og nafnið gefur til kynna, er í bókunum lýst allskyns hremmingum á fjöllum, í göngum og öðrum ferðalögum. Það er ótrúlegt að lesa hvað lífsbaráttan hefur breyst mikið á skömmum tíma. Það er t.d. ekki langt síðan fólk var að hætta sér fótgangandi eftir lyfjum milli byggðarlaga um hávetur, kannski til að bjarga ástvini. Fólk varð einnig oft úti á leiðinni til eða frá skemmtunum.

Stundum sekkur maður svoleiðis ofaní söguna að mann langar helst til að fara og leita uppi staðinn þar sem voveiflegir atburðir gerðust til að svipast um og á einhvern hátt til að votta þessu fólki sem barðist við náttúruöflin virðingu sína. Einn staður væri t.d. undir Álfasteini í Eiríksdal, undir Dyrfjöllum. Ég segi kannski betur frá því hvað gerðist þar fljótlega.

Ég hef áhuga á því að tvinna þennan áhuga minn saman við myndlistina. Hugmyndin er aðeins á fyrstu stigum en við skulum sjá hvað gerist.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap