Stífla

Myndlist er eins og golf. Einn daginn heldur maður að þetta sé bara allt komið og maður sé snillingur en svo kemur bakslag og maður getur ekki fyrir sitt litla líf gert neitt af viti. Kannski er maður að reyna of mikið. Er með nokkrar myndir í burðarliðnum en ekkert gengur.

Sótti um að vera með á Haustsýningu Listasafns Akureyrar um daginn. Maður þurfti að senda inn myndir af 2 verkum, CV og allan pakkann. Síðan leið og beið en í fyrradag fékk ég loks tölvupóst um verkunum hafi verið hafnað.

Einhverra hluta vegna tók ég þetta alls ekki nærri mér. Það var samt ægilega góð tilfinning þegar ég seldi svo báðar þessar myndir í dag á einu bretti. Ég var sjálfur alltaf býsna ánægður með þær.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap