Hús 2

Jæja þá er yndislegur dagur að baki og við búin að gefa dóttur okkur nafn. Hún fékk nafnið Dagbjört Lóa Bjarnadóttir við fallega athöfn sem Davíð Örvar vinur okkar stýrði. Ég er að sjálfsögðu afar ánægður með nafnið og veit að mamma er það líka. Oft verður mér líka hugsað til Dagbjartar langömmu sem var mikil kjarnakona og langt langt á undan sinni samtíð um margt.

Þó dagurinn hafi aðeins dregið úr manni fór ég samt inn í vinnustofu og gerði aðra tilraun á Dalsmynni. Þessi er mjög lík hinni en húsin eru mun betri en rofabörðin eru erfið og ég veit ekki hvort þau komist til skila.

Annars finnst mér vænt um hvað hefur verið mikil umferð hérna á blogginu hjá mér síðustu daga og vikur. Ekki veit ég hversvegna en það er nú frekar til að halda manni við efnið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap