Kvölddúttl
Tvö verkefni sem ég dundaði mér við í kvöld. Belgur er eftir mynd sem ég tók á símann í vetur þegar ég var að hjóla í Brekku og þvælast út á vatni. Mér tókst svo sem ekki alveg að ná því fram sem ég ætlaði að gera en myndin er svo sem ágæt að mörgu leiti. Ég hefði samt þurft að setja meira blátt í fjallið til að "ýta" því aftar í myndflötinn. Himininn er mjög neutra, kannski of.
Hin myndin er ein af þessum óteljandi sem ég er með í vinnslu fyrir ýmis tilefni. Eitthvað sem engin hefur beðið um en mig langað til að mála og færa að gjöf. Það gengur hægt á listann. Ef mér tekst að mála eina stóra fallega mynd ætla ég að gefa slysavarnarfélaginu hana til að hengja upp í nýrri aðstöðu sinni á Múlavegi. Sjáum til hvernig þessi verður eftir að ég hef klínt á hana málningu.
Ummæli