Lítill bátur


Það er alltaf eitthvað sem heillar mig við báta. Og fjöruna. Sem krakki gat maður gleymt sér niðri í fjöru tímunum saman. Núna bý ég uppi á fjöllum og sakna þess stundum að heyra ekki í sjónum og finna lyktina.

Í gær var ég að sortera gamlar myndir og tók til hliðar ljót verk til að nota sem skissupappír. Málaði þennan litla bát aftan á einhverja gamla mynd. Stal fyrirmyndinni á netinu. Grófur blýantur og frjálslega unnið. Kannski ég ætti að bæta nokkrum mávum inn á og athuga hvort maður finni þá þanglykt.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap