Edward Seago (1910 - 1974), Marsh and Sky,
Watercolor, 14 x 20 in
Einn af þeim vatnslitamálurum sem ég skoða myndir eftir aftur og aftur og aftur á netinu, er Edward Seago. Ástæðuna er m.a að finna hérna fyrir ofan. Fyrir það fyrsta er það himininn, sem oft er aðalatriðið í myndum eftir Seago. Sjóndeildarhringurinn er mjög oft neðarlega í hans myndum til að leyfa hinminum að njóta sín. Ég myndi drepa fyrir svona himinn.

Í öðru lagi er það allt að því yfirþyrmandi einfaldleiki. Stækkið myndina og veltið fyrir ykkur ströndinni, fjöllunum eða hæðunum í fjarska og því sem fyrir augu ber. Þetta lítur út fyrir að vera svo einfalt. Þetta eru bara nokkur form og nokkrir litir. En þetta er svo rosalega erfitt. Þetta er meistaraverk

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap