Belgur

Það er sennilega merki um að maður sé að skána við máleríið þegar maður getur tekið ónýta mynd og bjargað henni. Þessi var rosalega vond en reddaðist fyrir horn þó hún verði ekki römmuð. Ég hef svo litla þolinmæði fyrir að mála nothæfa forgrunna. Ég var hættur en stökk svo til og hrúgaði málningu á forgrunninn og djöflaðist. Hann er samt ekki góður.

Ég hefði þurft að hafa dramatískari himinn en ætla ekki að fikta meira í bili. Eftir að ég tók þessa mynd dekkti ég svo hluta af vatninu í fjarlægð og náði þannig smá tilfinningu um birtu. Það er spurning um að gera aðra atlögu að þessu í kvöld en breyta þá umhverfinu- þetta er of mikið af láréttum línum

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap