Pekel

Herman Pekel - sem er ástralskur málari - er í nokkru uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Verkin hans eru eitt og svo er það maðurinn sjálfur. Ég hef séð video of honum mála og hann er óborganlegur karakter. Fyndinn og lifandi. Þurrkar penslana í fötin og lifir sig inn í þetta í botn. Það sést líka á verkunum hans.

Mest af landslagsmyndunum hans eru málaðar í frekar flatneskjulegu umhverfi (það sem ég hef séð allavega). Ég hef gaman af þeim verkum og viðfangið viss áskorun í sjálfu sér. Oft er mistur í lofti og hæðirnar í fjarlægð ganga í samband við himininn. Hús, staurar, dýr og önnur smáatriði gjarnan túlkuð meistaralega vel með mjög einföldum hætti.

Ég get samt ekki annað en velt því fyrir mér hvernig hann tækist á við íslenska náttúru. Bláfjall að sumri í sunnan stormi með fjallaskúrum og mistri. Þörungagrænt vatnið, hvítfissandi öldur og Haganesland í forgrunni. Ég held það gæti verið stórkostlegt.

Ég er í mörgum verkefnum núna og mála lítið þessa viku. Þá verð ég að rífa mig upp á rassgatinu og fara að mála. Ég var beðinn um að gera nokkur verkefni og er ég stoltur og glaður yfir því. Ég set kannski inn einhverjar skissur. Annars bið ég bara fyrir hláku því mig langar svo að hjóla meira á fjöllum.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap