Fór snemma á fætur í morgun og hafði smá tíma til að prufa nýjan pensil sem Guðrún færði mér frá Reykjavík. Málaði útsýnið úr vinnustofunni- once and again. Ekkert meira um það að segja svo sem.
Dagur 2 í FésBókarbanni. Dásamlegt alveg. Samt skrítið að skoða fjölmiðla og fá brennandi þörf fyrir að tjá sig um fréttirnar opinberlega en geta það ekki. Það er ábyggilega mjög hollt. Það er mjög ánægjulegt að þurfa ekki að pirra sig á skoðunum annara. Ef mér líður eins eftir 20 daga finnst mér ólíklegt að ég snúi mér aftur að FB. Skrifa eflaust meira hér inn í staðinn.
Kveðja, Bjarni
Ummæli