Ég vann einu sinni með manni sem átti bágt. Hann vann í sínu fagi en var líka að þvælast í pólitík og gegndi einhverjum ábyrgðarstöðum. Á öllum vígstöðum voru menn á móti honum, hann kvartaði mikið yfir því. Hann einangraðist í vinnu og beit á endanum af sér alla nema örfáa starfsmenn (sem sumir voru skyldir honum). Í pólitík átti hann enga vini en nóg af óvinum. Allir voru að plotta bakvið tjöldin og vildu hann feigan. Þegar öllu er á botninn hvolt, þá gat hann ekki unnið með neinum.
Ég kunni alltaf ágætlega við hann persónulega, sérstaklega til að byrja með. Svo fór ég að hugsa; getur verið að allir hinir séu svona hræðilega vondir, eða er eitthvað annað sem er að? Nú veit ég um heila þjóð sem er í svona krísu. Það er sama hvað ráðamenn gera, það eru allar aðrar þjóðir á móti þessari einu litlu þjóð og plotta dag og nótt á bakvið hnausþykk tjöldin um að einangra þjóðina og svelta. Lengst norður í höfum.

Ummæli