297
Hef verið að prófa nýja "tré"-vatnsliti. Maður teiknar eða litar með þeim og bleytir síðan upp í því með pennsli. Þetta er nokkuð skemmtilegt þar sem maður áttar sig ekkert á því hvernig myndin mun verða fyrr en maður bætir vatninu saman við. Þá fer allt að renna saman og maður vonar það besta. Þetta hefur samt sín takmörk, m.a varðandi litablöndun.
Þetta skissuverkefni hefur fært óvænt líf hér inn á bloggið mitt. Veit samt ekki hvort ég ætti að fara að setja myndirnar inn í hærri upplausn. Þessi yfir ofan sést t.d frekar illa
Kveðja, Bjarni
Ummæli