278


Teiknaði þessa í skyndi í morgun til að redda mér. Gleymdi að teikna í gærkvöldi. Ég lít samt ekki svo á að verkefnið sé í uppnámi.

Brynleifur er veikur. Hitavella, frekar ljótur hósti og hor. Það stoppar hann samt ekki í að hlaupa um allt, rífa tæta og hamast. Það er þó oftar og oftar hægt að ná honum rólegum og lesa fyrir hann. Eins og sést á myndinni lásu þau mæðgin saman í morgun áður en Guðrún fór til vinnu.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap