Lestur

Ég les nokkuð mikið núna. Kannski er það sjónvarpsleysið, kannski eitthvað annað? Sennilega er það sitt lítið af hverju. Sumir myndu nú sjálfsagt ráðleggja mér að leita sálfræðings. Ég er að lesa heimspeki. Kannski mætti frekar segja að ég væri að glugga í hana, rétt að klóra í yfirborðið og kíkja inn í þennan skrítna heim. Heim sem flestir tala háðslega um en þekkja sennilega minna.

Stundum verður manni nánast óglatt af þessum lestri. Stundum finnur maður til vanmáttar eða upplifir sig pínu vitlausan. Ef það er þá hægt að vera bara pínu vitlaus? Helst er það þó nánast fullkomið skilningsleysi sem stendur uppúr. Stundum held ég að ég hafi hreinlega ekki nægilega mikla stærðfræði- eða rökvísigáfur til að meika lesturinn. Svo hnýtur maður um gullnar setningar sem einhvernveginn varpa ljósi og skilningi á sjálfann mann og lífið. Eitthvað sem var alltaf fyrir framan mann, en þó ósýnilegt. Eins og bakkamóískir teningar í kristíanískri kannabisvímu. Þetta heldur manni gangandi.

Ég er að lesa Órapláguna eftir  Slavoj Žižek og skil svona ca. 2% af því sem ég er að lesa. Einhverra hluta vegna móast ég þó við. Sit í "gula" einsæta sófanum með betri svipinn og Snoopy könnuna mína fulla af rjúkandi kaffi. Greddulegur trommuslátturinn í Rose Rouge með St Germain vísar veginn og ég læt mig dreyma um Viceroy. Það er eitthvað svo heimspekilegt við að reykja. Svo lít ég uppúr bókinni og styð vísifingri og þumalfingri undir hökuna (eins og grísk myndastytta) og horfi upp í norð- austurhornið á stofunni. Ég sit alveg stjarfur í nokkrar mínútur. Síðan læt ég líta út fyrir að ég hafi skyndilega öðlast einhvern dýpri skilning á efninu og lífinu, kinka rólega kolli tvisvar til þrisvar og lít svo aftur niður í bókina. Held svo áfram lestrinum, alveg vitaskilningslaust.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ertu að lesa ástrík.

HI

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap