Jólainnkaup

Fór til Akureyrar í gær að versla. Gamli Spakur bar mig yfir heiðar og skörð af miklu öryggi. Fallegur frostmorgun og gott að fá einn dag útaf fyrir sig. Náði að versla og útrétta fyrir hádegi en þá var einbeitingin líka búin. Fattaði það þar sem ég stóð inni í Rúmfatalager með 3 skóhorn í hendinni og starði á sömu hilluna alveg frosinn. Vissi ekkert af hverju ég væri að leita. Skilaði skóhornunum og labbaði út. Ofbirta og þrengsli.

Eftir þetta leystist þetta upp á hálfgerða vitleysu. Þvældist um án árangurs. Á svipuðum tíma og ég var að gera mér það ljóst, að sennilega myndi ég ekki vinna nein afrek í verslun það sem eftir lifði dags, þá opnuðust himnarnir og það tók að rigna. Hvað er betra en blaut svell, drulla og slabb? Gamli Spakur bar mig heim aftur yfir heiðar og skörð. Við verðum víst að fara aftur fljótlega. Við gleymdum að versla helminginn af því sem við áttum að versla. Svona eru jólin.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap