Ég er kominn með svolítið skegg. Telst seint með mjög þykka og góða skeggrót, en ætla ekki að láta það trufla mig núna. Ætla að djöfla þessu drasli í svona 0,5 metra sídd eða svo. Ég smellti einni mynd en þunnleikinn sést ekki mjög vel á henni. Stríurnar eru verstar í kringum munninn.  Í ljósinu sést líka rauði bjarminn sem karlmenn í minni föðurætt hafa gjarnan á skeggi sínu. Það væri gaman að vita hvaðan hann kemur.

Þegar ég var strákur fór ég einusinni í kaffi til hennar Betu gömlu sem skúraði skóladagheimilið á Holtsgötunni, Brekkukot. Fórum saman einhverjir krakkar og gengum vestan úr bæ og upp í Laugardal. Hún sýndi okkur gamla skeggbolla sem hún átti. Okkur þótti þetta voðalega fyndið og asnalegt. Núna væri ég alveg til í að eiga einn svona mústass-bolla. Maður er alltaf að tyggja þetta drasl með matnum og drekka það. Ég vil helst safna yfirvaraskegginu yfir munninn, þykku og góðu í anda Karls Marx.

Annars er það ótrúlegt hvað maður getur gengist upp í því að hafa áhyggjur af einhverju útliti. Hvað með þó skeggið sé ekki fullkomið? Ég held að á endanum verði ég svona lífrænn Forest Gump, hlaupandi um fjöllin hérna í snjónum með sítt og mikið skegg. Í sumar verð ég grindhoraður, ber á ofan með spínatpoka á bakinu að hlaupa um.... þetta er allt saman planað.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Það endar á því að ég sendi vinnufélaga mína til að handtaka ykkur hryðjuverkamennina, Ali Baba (Bjarni) og Habibi snjómanninn ógurlega á Þeistareykjum (Halldór). Þið hljótið að vera að plotta eitthvað voðalegt!

kv Hinrik Geir
Bjarni sagði…
Ha ha.... hver veit. Nýtum okkur aðstöðuna í sundlauginni til að brugga bombur;)
Nafnlaus sagði…
Líst mjög vel á. Hinrik reddar okkur einhverju stöffi sem er búið að gera upptækt hjá einhverjum handrukkara.

Halldór

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði