Traustur vinur
Ég hef verið að reyna markvisst að aftengja mig frá fjölmiðlaumræðu og fréttum nú í vor. Horfi þó alltaf á sjónvarpsfréttirnar ef ég hef tíma, enda ekkert líf án Boga Ágústsonar.
Maður kemst þó heldur ekki hjá því að heyra suðið í blessuðum forsetaframbjóðendunum við og við. Hlustaði aðeins á Ara Trausta í gær í morgunútvarpinu á Rás 2. Ólafur Ragnar var í sama þætti í morgun en ég gafst upp eftir 4 mínútur. Havrefras er frekar tormeltur matur.
Ég var alveg harður á því að ég væri Þóru maður frá upphafi. Hún hefur því miður sogast inn í heldur leiðinlega umræðu og er umdeildari heldur en maður bjóst við. Sama hvort það séu bara vænisjúkir íhaldsmenn sem geta ekki hugsað sér að fá konu af vinstri kantinum á Bessastaði, ég veit það ekki.
Þetta almannatengsladæmi hjá henni hefur heldur ekki alveg verið að virka á mig. Drottningargreiðslan, fötin og handahreyfingarnar, vantar bara að Margrét danadrottning sendi henni pakka af Prince og hún fari að vefa dúka.
Það getur vel verið að ég kjósi Þóru þrátt fyrir allt. Sigurvegari síðustu daga í þessari kosningabaráttu er samt að mínu mati Ari Trausti. Eftir að hafa hlustað á viðtalið við hann á Rás 2 í gær er ég ekki frá því að hann passi ágætlega við sjóslysamyndina og mublurnar á Bessastöðum.

Ummæli