Stuð
Þegar frægir tónlistarmenn eiga afmæli eru oft haldnir stórtónleikar þeim til heiðurs. Oft koma þá ýmsir tónlistarmenn saman og spila fyrir viðkomandi snilling. Hér á Íslandi þurfa svona ullarsokkar eins og Bjartmar Guðlaugs og Valgeir Guðjóns að halda sjálfir upp á afmælið með því að spila. Ágætis tilefni til að fá smá aur í vasann.
Bjartmar hefur verið að auglýsa afmælið sitt í útvarpinu látlaust undanfarna daga. Tónleikar í Háskólabíó. "Góðir Íslendingar, þá er komið að því"!. Það er eins og þjóðin hafi verið að bíða eftir því með drulluna í buxunum að hann ætti afmæli. Það er naumast að maðurinn er að drukkna í sjálfum sér. Það besta er, að það er til fólk sem kaupir miða á þennan óskapnað.
Eru ekki annars allir í stuði?

Ummæli