Þríþrautin
Eitthvað hefur nú dottið úr manni dampurinn á þessu blessaða bloggi sem átti að vera svo hroðalega mikið æfingablogg. Enda sér maður að heimsóknum fækkar hér mjög.
Hef alveg verið að halda dampi í æfingum fyrir þríþrautina á Laugum í ágúst. Það ánægjulegasta er að sundið gengur þokkalega og ég er að verða nokkuð bjartsýnn að ég nái að synda þessa 1500 metra af skriðsundi án þess að það þurfi að láta veiða mig úr lauginni með stjaka.
Ég er reyndar ekki byrjaður að hlaupa mikið aftur en það kemur. Er alveg heilaþveginn af þessu tásluhlaups-rugli öllu saman og utanvegarhlaupum. Ég ætla ekki að fara að hlaupa á tánum en hef þó verið að prufa mig áfram í skóm sem eru með þunnum botni og hef ekki fengið í hnéin ennþá. Ég er eiginlega farinn að trúa því að hlaupaskór séu verkfæri djöfullsins, svona þangað til ég verð búinn að eyðileggja á mér lappirnar með öðrum hætti.
Hjólaði upp í Hjaltadal í dag og fór í kaffi til Sillu og Gumma. Guðrún kom með strákana og Sigga og Haukur voru mætt á svæðið. Hjólaði svo heim aftur, skipti um skó, tróð í mig einni peru og hnetum og hljóp svo út aftur. Tók 4 km hlaup frekar hratt. Svona æfingar tíðkast fyrir þriþraut og er tilgangurinn að venja mann við að fara beint af hjólinu og í hlaup eða beint úr sundlaug og á hjól (hef ekki prófað það).
Ég hjólaði því 51 km í dag og hljóp 4. Ágætis dagsverk það.
Kveðja, Bjarni

Ummæli