Sveit
Skelltum okkur með drengina í Mývatnssveitina um helgina og höfðum það gott. Fengum alveg frábært veður á laugardaginn en gátum ekki notið þess almennilega þar sem maður var með hvíðahnút í maganum yfir veðurspánni. Fór samt og náði í markriffilinn minn í Helluvað á laugardag og við Daníel tókum smá seríu úti í Hróum. Blanka logn, fuglar á stjáið og það bergmálaði í Belgnum þegar við hleyptum af, bara alveg eins og í gamla daga. Þetta var bara fjandi gaman og ég er búinn að panta festingar á riffilinn og ætla að skella aftur á hann kíki. Við strákarnir getum svo kíkt á skotsvæðið og æft okkur.
Skellti nagladekkjunum undir hjólið í gærkvöldi svo ég gæti farið á því til vinnu þessa vikun. Tók alveg sæmilega í á móti norðan hríðinni. Nennti svo ekki á hjólinu aftur eftir hádegið þar sem ég er eitthvað slappur og þurfti að útrétta. Maður bætir það bara upp á morgun en þessi vika verður eitthvað hálf léleg. Hefði viljað bæta það upp með sundæfingum en þar sem ég er rifbrotin verð ég víst að taka því rólega.

Ummæli