Ælt og skitið á páskum
Æla smá og skíta mikið- pestin hefur heiðrað okkur með nærveru sinni um páksana. Ég veit að þið viljið ekki vita mikið meira um þetta. Þó svona kveisur séu yfirleitt ekki mjög skemmtilegar, þá koma upp móment sem ekki er annað hægt en að hlægja að, sérstaklega þegar Daníel greyið á í hlut. Hann á svo erfitt með þetta blessaður. Í gær þurfti hann að æla og þar sem svefnherbergisglugginn var opinn lá beinast við að æla þráþbeint þar út. Nágrannarnir hafa sjálfsagt haldið að villt svallveisla væri í gangi. Guðrún rauk inn í herbergi að reyna að redda þessu en hún er svo klígjugjörn þessi elska að hún stóð og hélt í kjökrandi Daníel og kúgaðist reglulega. Nóg um það.
Nú er reyndar kominn þriðjudagur og ég rétt a klára þennan póst sem ég byrjaði á á sunnudaginn. Það er allt svo kreisí að gera hjá mér, má ekki vera að þessu.
Kveðja, Bjarni
Nú er reyndar kominn þriðjudagur og ég rétt a klára þennan póst sem ég byrjaði á á sunnudaginn. Það er allt svo kreisí að gera hjá mér, má ekki vera að þessu.
Kveðja, Bjarni
Ummæli