Smá fréttir
Í fréttum er þetta helst að uppeldi drengs Bjarnasonar gengur vel. Guðrún skellti honum í galla í vikunni og dröslaðist með hann í Kaupfélagið þar sem hann honum leið eins og heima hjá sér. Ég bjó til nýtt albúm fyrir áhugasama þar sem m.a má sjá mynd af stráksa á leið í þessa pílagrímsferð. Myndin sem fylgir með þessum pósti er hinsvegar af okkur feðgum að horfa á heimildarmynd um Lance Armstrong og Tour de France.
Var að skella inn alveg voðalega löngum pistli um þjálfunarmistök sem fólk gerir gjarnan í hlaupaprógrömmum. Þetta er að finna á fróðleiknum mínum. Ég vara fólk við, þetta er hardcore stuff fyrir langt leidda hlaupasjúklinga. Er búinn að leggja inn pöntun fyrir hjól hjá Kría Cycles í Reykjavík. Þarna hef ég fengið frábæra þjónustu og þeir gátu boðið mér mjög gott hjól á fínu verði. Tegundin er Specialized. Veit ekki mikið um hjól en þetta er best í heimi, lang lang best.
Æfingar ganga ágætlega og hné kvartar ekki mikið. Sundið stendur kannski ekki alveg í stað en gengur ekki nógu hratt. Sérstaklega óþolandi að þurfa að fara á kvöldin þegar allt er fullt af fólki. Jæja þýðir ekki að grenja yfir því. Get samt ekki beðið eftir að byrja að hjóla. Jæja er að fara út að hlaupa áður en nóttin kemur.
Kveðja, Bjarni

Ummæli