Rjómasveppahelgi

Með Siggu frænku

Jæja þá er þessi rjómahelgi brátt á enda runnin. Pizzaveisla á föstudaginn, steikt hrossakjöt með rjómasveppasósu í gær og beikonvafin, gráðosta- og pipar-rjóma-ostafyllt grísalund með rjómasveppasósu í kvöld. Nú hlær fitupúkinn og ljóst að íþróttadjöfullinn þarf að ná vopnum sínum aftur.

Sigga systir Guðrúnar og Haukur maðurinn hennar kíktu á okkur um helgina með sína syni enda áttu þau eftir að hitta nýja frændann. Eins og sést á myndinni fannst litla stubb það ekki leiðinlegt.

Mamma var búin að vera að kvarta undan myndaskorti af pjakknum og því bjó ég til nýtt albúm sem heitir Ömmumyndir. Það eru komnar einhverjar örfáar myndir þar inn núna og kannski bætist eitthvað við í vikunni.

Kveðja, Bjarni 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap