Örblogg
Þetta verður hálfgert örblogg enda ég á leiðinni út í búð að kaupa poppmais og leigja mynd. Afmælisdagurinn búinn að vera frábær. Gat sofið lengur í morgun og var vakinn upp með nýbökuðum bollum úr Sauðárkróksbakarí, hafragraut, ávöxtum og ég veit ekki hvað og hvað og hvað....... Fór síðan á sjóinn í smá rannsóknarleiðangur á tjarnsléttan Skagafjörðinn. Síðan eldaði mín heittelskaða dýrindis kvöldmat og ég hef ekki þurft að gera nokkurn skapaðan hlut. Ég fékk líka fínar gjafir. Dæmisögur Tolstoy´s, mjólkurkönnu sem er merkt "Kveðja frá Skagafirði" (fjölskylduhúmor) og svo Balance Bond. Ég er að sjálfsögðu orðinn algóður í mjöðmum og hnjám af þessu bandi.
Hef verið að hlaupa nokkuð reglulega núna en fer stutt í einu, yfirleitt ekki meira en 5 km. Síðan bæti ég við smátt og smátt og sé hvort þetta lufsist ekki eitthvað. Fór fyrir kvöldmat í dag og var góður bara. Eftir að ég fór að vinna aftur get ég ekki lengur farið í sundið á morgnana með gamla fólkinu og það er mikill söknuður af því. Þurfti að berjast um í lauginni í gærkvöldi við að gera mínar spastísku æfingar með skríkjandi gelgjur og ofvirk börn í andlitinu. Jæja meira seinna
Kveðja, Bjarni
Ummæli