Heimkoma
Loka skoðun
Jæja þá erum við komin heim aftur og við skulum vona að nú verði það til langdvalar. Ég er búinn að lesa drengnum pistilinn og banna honum að veikjast svona aftur á næstunni. Nú er bara að vona að hann hlusti á pabba sinn. Það er allavega búið að skoða drenginn í topp, hjarta, nýru, lungu, blóð, mænuvökva, þvag og ég veit ekki hvað og hvað. Niðurstaðan alltaf sú sama; hann er fullkominn eins og foreldrarnir. En og aftur verður maður líka að minnast á þetta frábæra fagfólk á FSA og þessa frábæru barnadeild. Maður verður alveg foxillur að heyra að það eigi nú kannski að fara að loka henni um helgar. Það hefði þýtt að við hefðum þurft að dvelja með hann á almennri deild.
Eftir skoðun var rennt í Bónus og verslaðar bleyjur og svo keyrt heim. Hann svaf eins og álfurinn sem hann er alla leiðina og er vær og góður í augnablikinu. Jæja best að fara að berja drengina í svefn enda skóli á morgun. Ætli maður vakni ekki með þeim og taki eina netta sundæfingu.
Kveðja, Bjarni
Ummæli