Ákvað að henda inn smá línu þó ekkert sé nú títt þannig lagað. Litli kútur dafnar bara vel á spítalanum (móðirin líka) og nú hlýtur að fara að styttast í að við fáum að fara heim. Ótrúlegt hvað er erfitt að hafa þau svona langt í burtu þó maður viti að allt sé í stakasta lagi.
Búinn að vera rosaleg húsmóðir í dag, þvo þvotta elda og baka bollur. Svo var ég lika aðeins að vinna í skýrsluskrifum fyrir golfklúbbinn. Alrei meira að gera en þegar maður er ekki að vinna. Ég skil ekki hvernig við förum að þessu þegar við erum bæði að vinna úti.
Fór í morgun og tók ágætis sundæfingu. Þessar æfingar sem ég er að taka núna eru þannig gerðar að þær eru frekar stuttar og samanstanda af mikið af allskonar æfingum -sem með tímanum eiga að skapa meistarann. Kíkti svo aðeins í ræktina eftir kvöldmatinn og er byrjaður að styrkja á mér lappirnir og athuga hvort ég komist ekki fyrir þennan hnjá-fjanda. Set inn eina mynd af litla kút sem var tekin heima um daginn.
Kveðja, Bjarni
Ummæli