Meiri hitavella

Finnst ég verða að setja hér inn smá fréttir af okkur fjölskyldunni í Laugatúni 3.Eftir að allt hafði gengið vel með Dreng Bjarnason (eins og hann heitir í bókhaldi sjúkrahúsa) í nokkra daga þurftum við að fara með hann í heimsókn á FSA aftur. Hann var búinn að vera óvær í 2 daga með einhverja magaverki, svona eins og gengur og gerist með 2 vikna gamla menn. Síðan þegar hitinn steig aðeins upp í kjölfarið var ekki annað þorandi en að kíkja á spítalann aftur þar sem hiti í ungbörnum er alltaf tekinn alvarlega.

Fyrst eftir komuna hingað í gærmorgun var ákveðið að bíða með meðhöndlun þar sem prufur bentu ekki til þess að neitt amaði að og hitinn var heldur á undanhaldi. En í gærkvöldi var ennþá smá hitavella í gangi og einhver breyting á próteinum í blóði (mjög lítil) þannig að sem öryggisráðstöfun var ákveðið að setja hann á smá lyfjakúr. Annars er það nú þannig, að það virðist vera nóg fyrir kútinn að bara koma til Akureyrar til að verða frískur. Hann er búinn að vera mjög líkur sjálfum sér eftir komuna hingað, drekkur vel, er vær og hraustlegur. Það er erfitt að segja til um hvað hefu valdið þessum kveisum -sem taka foreldrana algerlea af taugum- en það er svo sem ekkert sem bendir til þess að þetta sé neitt alvarlegt. Daníel var t.d með pest í síðustu viku og það gæti verið nóg.

Við þurfum væntanlega að dvelja hérna allavega fram á þriðjudag til öryggis en sjáum til hvort eitthvað komi í ljós þegar niðurstöður úr ræktunum koma fram á morgun. Skal alveg viðurkenna að ég væri alveg til í að fá skýringar. Þetta ævintýri varð til þess að ég sleppti hlaupinu í gær, sem verður ósköp léttvægt í þessum samhengi. Jæja við biðjum að heilsa öllum í bili.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap