Nýjar myndir

Jón Reynir að kíkja á augun
Jæja þá er ég búinn að setja inn 3 myndaalbúm sem tengjat fæðingu frumburðarins. Fyrsta albúmið er frá fæðingardeginum sjálfum og daginn eftir og síðan er eitt albúm sem inniheldur myndir frá því við þurftum aftur að fara á sjúkrahúsið með hita. Margar af þeim myndum eru teknar á síma. Síðan er eitt albúm þar sem eru myndir frá því við komum heim í seinna skiptið. Það eiga nú eftir að bætast fleiri myndir við það.

Annars höfum við það ljómandi gott og litli pjakkur  dafnar vel. Drekkur, sefur og kúkar, alveg eins og pabbinn sem hefur ekki sofið svona vel í fleiri ár. Foreldrarnir hafa ekki þorað að hætta sér mikið út í umræður um nöfn en nöfnin Sigurbaldur Hagalín og Micheal Fjólmundur eru annsi heit.

Fór í sund í gær og synti 1000 metra. Byrjaði á því að synda 150 m skrið án hjálpartækja og ég held að þetta sé allt að koma, þarf bara að geta synt 10x lengra án þess að stoppa. Setti svo á mig sundfitin og gerði mismunandi æfingar. Ég ætla fljótlega að setja smá umfjöllun um þessi sundfit inn á græjusíðuna hjá mér enda snilldar dót.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap