Sprettæfing dagsins, hraði og púls.
Fór út að hlaupa áðan. Tók smá hring í kringum "miðbæinn" og fór svo á íþróttavöllinn að taka spretti. Kom hjartsláttarmælinum í lag fyrir hlaupið en ég hef ekki haft hann með mér lengi. Það er reyndar galli við þessa mæla, sérstaklega þegar maður er í fötum úr gerviefnum, þá veldur stöðurafmagn því að mælirinn rýkur upp þar til fötin eru orðin rök og maður heitur. Þetta eyðileggur öll meðaltöl fyrir manni (arrrrrggggg). Hjartslátturinn er víst eitthvað mikilvægasta "æfingartækið" sem við getum haft og því er ég byrjaður skoða þetta aftur. Maður er klikkaður og farinn að spá í hvíldarpúls, hámarkspúls og ég veit ekki hvað.
En sprettirnir voru svo sem ágætir og formið er gott en nú eru blessuð hnéin farin að kvarta aftur. Ég þarf að gera einhverjar sérstakar teygjur og styrktaræfingar fyrir lappirnar. Þetta helvítis hlauparahné. Jú og ætli maður verði ekki eitthvað að minnka álagið á næstunni. Fór í sund eftir æfinguna og tók 500 metra skriðsund. Skriðsundið skánar með blöðkunum en ég sökka án þeirra.
Það sem af er viku
Hlaup: 18,4km
Sund:2,2
Lyftingar 50mín
Ummæli