H2O
Langar að henda hérna inn smá punktum um vatn sem ég fann í blaðinu Triathlete´s World. Þetta ætti kannski frekar heima undir fróðleik, but what the hell.
Maðurinn er ca. 60% vatn og við lifum ekki lengi án þess að fá vatn í einhverju formi. Vatn viðheldur líkama okkar en það bætir líka heilsu okkar á margvíslegan og jafnvel svolítið óvæntan hátt.
Hitaeiningar. Í rannsókna sem gerð var í Bandaríkjunum kom í ljós, að þeir sem drukku 500ml af vatni fyrir máltíð tóku inn 13% færri hitaeiningar.
Laga hausverk. Í annari rannsókn kom í ljós að mígrenissjúklingar sem drukku 1 líter af vatni á dag losnuðu við sársauka í 21 klukkustund á 2 vikna tímabili.
Minnkar líkur á krabbameini. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að vatnsneysla og góð vökvun/vötnun líkamans getur minnkað líkur á ristil- og blöðruhálskrabbameini.
Vinur nýrnanna. Að drekka það mikið af vatni að maður nái að losa 2 lítra af þvagi daglega hjálpar líkamanum að losna við óþverra sem annars gæti kostað nýrnasteina.
Þar hafið þið það, segi ég og fæ mér meira kaffi.
Vaknaði til að ræsa strákana í skólann í morgun og skellti mér svo í sund þar sem ég var vaknaður hvort sem er. Synti 1000 metra og held að þetta skriðund sé nú eitthvað að þokast í rétta átt. Fór svo rétt fyrir kvöldmatinn og hljóp rúma 8 km og nú var ég virkilega léttur á mér og í fínu formi. Ég held að það sé góðs viti að ég man varla eftir hlaupinu.
Horfði á Smart Motion DVD diskinn í gær sem mamma fékk á einhverju hlaupanámskeiði. Vissi svo sem ekki alveg við hverju ég ætti að búast en þetta reyndist svo sem vera ágæt mynd þó ég haldi því fram að ég hafi verið með ágætis hlaupastíl fyrir. Myndin er ábyggilega mjög góð fyrir þá sem eru að byrja og farið er yfir atriði sem er ágætt að hafa í huga varðandi líkamsstöðu, skreflengd, takt og teygjur svo eitthvað sé nefnt. Þetta miðar allt að því að beita líkamanum rétt, nota sem minnsta orku í hlaupið og þannig minnka álag á lappir og líkama. Ég allavega tók nokkur atriði úr myndinni og hafði bakvið eyrað í hlaupinu í kvöld og kannski hjálpaði það eitthvað til með hnéin. Myndin fær helst mínus fyrir miður skemmtilegt og síendurtekið gítarstef sem ætlaði mann lifandi að drepa. Annars er það bara hvíld á morgun og keppni á laugardag ef það verður ekki stórhríð.
Kveðja, Bjarni

Ummæli