Track and field
Eitt af því sem ég er farinn að meta mikið við að búa hérna er þetta frábæra íþróttasvæði sem er hérna. Hefði nú reyndar seint trúað því að ég ætti eftir að telja það sem kost eins og ég hataði nú hlaup og hreyfingu hér áður fyrr.Þetta hef ég nýtt mér til þess að taka sprettæfingar.
Í dag skokkaði ég að heiman og út á völl. Ég tók 10x200metra spretti með skokki á milli. Síðan voru góðar teygjur á eftir og skokkað heim rólegheitum. Þegar heim er komið nördast maður svo yfir að skrá þetta allt saman og skoða. Það heldur manni við efnið.
Hlaup dagsins: 7,6 km
Það sem af er mánuði 101,1 km
Kveðja, Bjarni
Sprettæfing dagsins
Eftir að ég fór að bæta þessum sprettæfingum inn í hlaupin hjá mér hef ég fundið mikinn mun á mér. Ég vil meina að þær hafi gert það að verkum að mér fór að finnast lengri hlaupin skemmtilegri og síðast en ekki sís, auðveldari. Þegar maður leyfir líkamanum að kynnast meira álagi tímabundið fer skokkið að verða auðveldara. Ég held að þetta sé líka sálrænt. Þessir sprettir eru líka nauðsynlegir til að hækka mjólkursýruþröskuldinn, þ.e hækka þann þröskuld þar sem mjólkursýra fer að myndast í blóðinu. Einnig er þetta fín leið til að kýla upp efnaskiptin og auka brennslu. Þetta er ótrúlega fljótt að virka.Í dag skokkaði ég að heiman og út á völl. Ég tók 10x200metra spretti með skokki á milli. Síðan voru góðar teygjur á eftir og skokkað heim rólegheitum. Þegar heim er komið nördast maður svo yfir að skrá þetta allt saman og skoða. Það heldur manni við efnið.
Hlaup dagsins: 7,6 km
Það sem af er mánuði 101,1 km
Kveðja, Bjarni
Ummæli