Að hlaupa af sér kílóin

Þegar ég hætti að reykja fór ég að hlaða á mig kílóunum. Maður tók svo sem ekkert sérstaklega eftir þessu, vaknaði bara einn daginn ca. 10 kg þyngri en ég var þegar ég sofnaði.

Þegar ég lyfti á sínum tíma hrundi ég alveg niður í þyngd. Ég fór undir 70 kg. sem bendir til þess að ég hefði alveg mátt éta aðeins meira. Maður var samt alltaf að moka í sig einhverjum fæðubótarefnum og það var búið að hræða mann alveg voðalega með að hlaup og erfiaðar þolæfingar myndu brjóta niður vöðva.

Ég vissi ekki alveg við hverju væri að búast þegar ég byrjaði að hlaupa, en reiknaði einhvern veginn með því að kílóin myndu fjúka alveg um leið. Ég verð nú að viðurkenna að þetta tók aðeins meira á en ég hefði búist við.

Eins og sjá má á þessu línuriti mínu þá þurfti ég að sjálfsögðu að nálgast þetta á vísindalegan hátt. Svarta línan er áætluð þyngd en sú rauða er raunþyngd sem ég mældi nokkuð reglulega. Ég reiknaði með að ég myndi léttast um 500 gr. fyrstu vikuna og síðan reiknaði ég það sem hlutfall af heildarþyngd viku fyrir viku. Þetta er kannski svolítil einföldun á málinu en nær raunveruleikanum en að léttast alltaf um fasta tölu áháð eigin þyngd.

Eins og sést á þessu línuriti þá var ég mestan tíma yfir áætlun. Skráningin hófst í viku 1. (byrjun janúar 2011) en í lok mai, n.t.t. í viku 21 datt skráningin eitthvað niður. Í lok júní hef ég grun um að ég hafi verið kominn aftur á línuna og vona að ég fari ekki neðar.


Næst ætla ég að sýna yfirlit yfir hlaupaæfingarnar og hvaða markmið ég setti mér svo það sjáist hvað liggur að baki.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap