Ferðasaga VII


14.06.2011
Vaknaði eldsnemma til að koma inn hring af golfi fyrir ráðstefnusetu dagsins. Fór á völl sem heitir Fox Meadow og er hérna við bæjarmörkin. Spilaði því miður ekki nógu vel en lenti samt í frekar sérstakri lífsreynslu. Þegar ég var á 15 holu, sem er par 3, kemur rauðrefur skokkandi inn á flötina þegar ég er að fara að slá. Ég leyfði honum að komast út af flötinni en lét svo vaða. Höggið var frekar lágt með sveig til vinstri og stefndi beint á refinn. Kúlan hafnaði rétt við refinn og skaust svo í átt að holunni. Fullkomið högg og ég gat ekki betur séð en að kúlan færi alveg upp að holu. Þá stekkur kvikindið af stað, eltir boltann á fullu og nær honum við holuna. Skokkar svo rólega í áttina til mín með boltann í kjaftinum og þegar hann átti ca. 10 metra eftir að mér fékk hann sér að skíta í makindum og stökk svo inn í skóg með kúluna í kjaftinum? Þessi völlur, sem var snilld, ber því nafn með rentu.

Fór síðan á ráðstefnu og hef svo sem engar skemmtifréttir að færa þaðan. Kláraði um kl. 18 og þá fórum við frændi út að hlaupa. Halldóra fékk svo að velja veitingastað fyrir kvöldið og var Boston Pizza fyrir valinu.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Þetta er alveg magnað :)hefði viljað sjá þig.........M

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap