Ferðasaga VI
Mánudagur 13.06.2011
Vaknaði um kl.08 til að fara í morgunmat sem hafði lokið kl. 08:00. Hér er ekkert vesen, ef þú ert ekki búinn að éta fyrir kl.08, þá geturðu bara sleppt því. Fór á ráðstefnuna og hlustaði á fyrirlestrana. Var mjög ánægður að komast að því að ráðstefnan fjallar um mjög svipaða hluti og ég er að vinna við. Þvílík tilviljun!
Eftir ráðstefnu skelltum við frændur okkur út að hlaupa og svo var farið að éta á bar hér í bæ sem ber nafnið Gahan pub. Mánudagskvöld en samt allt fullt af fólki og allir að fara að horfa á Vancouver keppa við Boston í hokkí. Allir sjúkir í þetta hérna og mikil stemmning. Vancouver skeit samt því miður á sig. Hef ekkert tekið myndir í dag og verða að fara að vera með vélina á mér og taka einhverjar myndir. Það er svo tímafrekt að redda sér með pennanum eins og ég þurfti að gera í dag á ráðstefnunni.
Góða nótt, Bjarni
Ummæli