Ferðasaga I


Ætla að reyna að nota þetta blogg eitthvað víst ég var að kaupa það og skrifa smá dagbók í nokkra daga. Þarf reyndar að fara aftur í tíman og byrja á miðvikudaginn síðasta.

Miðvikudagur 8.06.2011
Vaknaði frekar snemma og keyrði Daníel í golfskólann. Spilaði 9 holur sjálfur og gekk bara nokkuð vel ef ég man rétt. Fór heim og tók mig til. Lagði af stað til Rvk. kl. 13:30 ca. Kom suður og fór fljótlega í Sundhöll Reykjavíkur sem er lang svölust. Skipti um föt og fór svo og keppti í Heilsuhlaupi Krabbameinsfélagsins. Náði markmiði mínu um að hlaupa 10Km á undir 45 mínútum og var tíminn 44:19. Fór svo á Humarhúsið og hitti vini okkar Jens frá Ameríkunni og tróð í mig humar í boði John Eichten. Frábær dagur.

Get ekki annað en sett með eina ljóta hlaupamynd af mér sem er á hlaup.is.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Djöfull ertu vígalegur þarna, örugglega ekki að hlaupa í sama strekkingsvindi eins og í sveitinni um daginn!
Bjarni sagði…
Já sæll. Það var helvítis strekkingur þarna, en ekki jafn slæmt og hjá okkur um daginn sko!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði