Það er ljótt að ástandið hérna sé orðið svo slæmt að fólk geti jafnvel hugsað sér að flytja til Noregs. Annars finnur maður það nú á eigin skinni núna hvað farið er að þrengja mikið að. En andskotinn sjálfur, Noregur? Neee
Kylfingur spjall
Á kylfing.is var haldið úti spjallborði um nokkra hríð þar sem menn gátu skipst á skoðunum um golf. Þetta var þægilegt spjallborð þar sem maður réð því hvort maður kom fram undir nafni eða ekki. Maður skrifaði bara athugasemd eða samdi nýjan þráð og lét svo kommentið flakka. Mér finnst það svolítið dæmigert fyrir Íslendinga að ekki var hægt að halda þessu gangandi og nú hefur því verið lokað. Þetta spjallborð byrjaði kannski ágætlega en á endanum flæddu persónulegar árásir á menn, skítast og viðbjóður út úr hverjum þræðinum á fætur öðrum. Þetta gekk svo langt að ákveðnir einstaklingar voru lagðir í einelti. Menn sem höfðu jafnvel ekki unnið sér neitt til saka annað en að vera ástríðufullir áhugamenn um golf en höfðu kannski svolítið aðra sýn á hlutina en flestir aðrir. Og þetta var spjallborð um golf! Það er kannski ekki furða að umræða um kreppu og stjórnmál endi á villigötum þegar við getum ekki einu sinni rætt um eitthhvað jafn saklaust og golf án þess að froðufella af reiði o...
Ummæli