Bylgjan

Hlusta stundum á Bylgjuna á morgnana þar sem ég næ ekki annari stöð hluta af leiðinni í vinnuna. Þátturinn fer yfirleitt þannig fram að Kolla og Heimir fá til sín fólk sem hatar ríkisstjórnina frekar- til mjög mikið. Seinnipartinn, þegar Þorgeir "ég fer í fríið" Ástvaldson og félagar taka við, hringir svo inn brjálað fólk sem er búið að gleyma því hvernig ballið byrjaði og finnst þrifin ganga hægt fyrir sig. Fólk sem vill ekki borga skatta og skilur ekki að það sé verið að skera niður. Spurning hvað það kaus á sínum tíma? Ég man þegar verið var að spá því árið 2008 að súpueldhús ættu eftir að rísa um allt land til að seðja hungur landans, svo djúp yrði kreppan. Og hvað svo?

Nýjasta útspil Bylgjumanna er að að gefa forstjóra N1s drottningarviðtöl ca. einu sinni viku þar sem hann útskýriri hvernig N1 rétt nær að skrimta á þessum litlu álögum sem þeir leggja á bensín en kenna ríkisstjórninni alfarið um hátt olíuverð. Viðtalið á yfirleitt að þjóna þeim tilgangi að fræða sauðheimskan almúgann um þróun olíuverðs í heiminum.

Það má alveg deila um álagningar og hvaða leiðir sé best að fara út úr þessari kreppu en fyrr má nú vera andskotann einstefnan á þessari helvítis útvarpsstöð.

Góða nótt, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hvað er þetta - nærðu ekki einu sinni gufunni??
Kv. Sigga Júlla (mágkonan sem hlustar alltaf á Óskastundina)
Bjarni sagði…
Já sæl

Ég reyni líka að hlusta á Óskastundina;) KK er reyndar alltaf góður milli 8-9. Reyndar bara alveg snilld.
Halldór sagði…
Held þú ættir bara að hlusta á Skálmöld.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap