Salat
Var að búa til alveg ævintýralega gott kjúklingasalat. Uppskriftin er víst fengin af veitingastaðnum Italia í Reykjavík þar sem þetta er eða var forréttur. Gott er að éta þetta sem aðallrétt.
Kjúklingabringur
Hveiti
Salt
Pipar
Jöklasalat
1/4 Rauðkálshaus
Kirsuberjatómatar (ég ét samt ekki þann andskota)
Balsamikedik
Ólífuolía
Smjörklípa
Steinselja (sem ég keypti en gleymdi að nota)
Síðan bætti ég við raulauk, fetaosti, svörtum ólífum og reif ferskan parmesan yfir áður en ég tróð þessu í freknótt smettið á mér.
Saltið og piprið hveitið og veltið bringunum upp úr. Setjið ólífuolíu á pönnuna og hitið vel. Brúnið bringurnar (gott að gefa frá sér mökunarhljóð vörtusvína á meðan), takið þær síðan af og skerið í strimla. Hendið aftur á pönnuna og setjið slettu af balsamikediki með. Bætið síðan við klípu af smjöri (gott að stynja á meðan)á meðan þetta klárar sig.
Skerið niður allt salatið -maður ætti að vera búinn að því- takið síðan kjúklinginn og leggið ofan á og hellið af pönnunni yfir.
Fandalagústa, Bjarni

Ummæli
Vissi ekki að þú værir farinn að tjá þig aftur. Gaman að því.
Þinn ástkæri Halldór
Kv. mágkonan í Norge