Laust starf

BIOPOL EHF

SÉRFRÆÐINGUR Á SVIÐI LÍFTÆKNI

Sérfræðingur á sviði líftækni eða líffræði

BioPol ehf., Sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd og Háskólinn á Akureyri óska eftir að ráða sérfræðing á sviði líftækni, líffræði eða einstakling með sambærilega menntun. Umsækjanda er ætlað að stunda rannsóknir og kennslu á sviði sjávarlíftækni. Sérstaklega er horft til rannsókna á örverum, dýra- og plöntusvifi með hagnýtingu í huga. Einnig er viðkomandi ætlað að móta og byggja upp frekari rannsóknir á þessu sviði. Starfsstöð umsækjanda verður á Skagaströnd.

Hæfniskröfur:

Meistara eða doktorspróf í fyrrgreindum fræðigreinum.

Reynsla af rekstri og uppsetningu rannsóknaverkefna.

Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð.

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars nk. Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um menntun, starfsreynslu og meðmælendur berist BioPol ehf., Einbúastíg 2, 545 Skaga-strönd. Hæfi umsækjanda verður metið eftir reglum Háskólans á Akureyri.

Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur Einarsson hei@unak.is prófessor við Háskólann á Akureyri í síma 460 8502 og Halldór G. Ólafsson halldor@biopol.is framkvæmdastjóri í síma 452 2977 eða 896 7977.

Já eða bara smellið línu á kallinn

Ummæli

Nafnlaus sagði…
er svona brjálað að gera þarna hjá ykkur? Frábært!
Kv. Sigga Júlla
Bjarni sagði…
Alltaf nóg að gera en einn var að hætta.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap