Fáránlegur draumur


Mig dreymdi að ég væri að aldursgreina hveiti eða byggstöngla fyrir Þórð. Ég var staddur í borðstofunni í Gamla húsinu heima í Brekku og það var eitthvað fólk í kringum mig. Ég veit ekki afhverju Þórður gerði þetta ekki sjálfur en ég man að ég var að blóta honum fyrir að koma þessu öllu yfir á mig.

Þetta fór þannig fram að maður tók sýni úr poka, eitt og eitt strá, vafði koparvír um endana og kom því fyrir í einhverju tæki. Síðan las maður aldurinn út eftir einhverjum árhringjum. Þetta gekk ágætlega þangað til Beggi hennar Önnu benti mér á að ég væri að gera þetta vitlaust. Maður átti að þræða grásleppuhjarta upp á vír sem var á tækinu og það leiddi rafmagn. Maður las svo aldurinn út úr stráinu, setti niðurstöðurnar inn í einhverja jöfnu og þar þurfti maður að leiðrétta eða reikna með því hversu mikið grásleppuhjartað hefði þornað þar sem það myndi þá leiða minna rafmagn. Síðan vaknaði ég.

Mynd af tækinu fylgir pistlinum.

Góða helgi, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ég hefði gert þetta sjálfur en ég kann bara ekki á þetta tæki. Þetta er eðlilegur draumur Bjarni.
kv. Þórður

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap