Ferðalög


Piltur og stúlka

Jæja ekki fer nú mikið fyrir skriftunum hjá manni svona rétt yfir heyannirnar. Maður bara nennir eitthvað lítið að sitja við lyklaborðið og hamra steypu á vefinn. Það væri nú samt frá nokkuð mörgu að segja, enda við fjölsyldan verið víðförul síðustu misserin.

En við erum ekki eingöngu búin að ferðast utanlands. Við gömlu hróin skelltum okkur í rómantískan æxlunarleiðangur í Heklubyggð um síðustu helgi og fengum bústaðinn hjá Jens frænda. Ekki að spyrja að því.

Fimmtudagur 29. júlí: Guðrún kom og sótti mig í vinnuna og við keyrðum í snatri suður. Fórum í Bónus í Smiðjuhverfinu og vorum afgreidd af stelpu sem afgreiddi í ofsa. Henti vörum og gargaði tölur. Keyptum fullt af feitmeti og kolvetnum. Brunuðum í bústaðinn, kveiktum á 30 Rock og lögðumst á hliðina.


Guðrún við Seljavallalaug

Föstudagur 30. júlí: Vöknuðum frekar snemma og keyrðum niður á Hvolfsvöll. Fórum á Sögusetrið og skoðuðum allt frá víkinghjálmum að ritvélum og prenturum frá blessuðu Sambandinu. Ágætis skemmtun en allt of heitt inni í sýningarsal. Nokkuð mikið var minnst á Kaupfélag Þingeyinga á veggspjöldum og hífði það safnið upp á örlítið hærra plan. Síðan fórum við á sveitamarkað og skoðuðum frosið kjöt, ljótt prjónadót og eitthvað stöff sem var frá Søstrene Grene eða hvað sem hún heitir draslbúðin í Smáralind. Ekkert sérstakur markaður en þó hægt að kaupa ferskt grænmeti. Fórum svo bara upp í bústað og horfðum á 30 Rock.

Laugardagur 31. Júlí: Keyrðum í Skógasafnið en tímdum ekki að borga okkur inn. Keyrðum svo á Vík og átum alveg ruglaðar samlokur sem voru jafnt stökkar sem sveittar, fullar af beikoni, pepperoni og allskonar gúmmelaði. Man ekki hvað veitingastaðurinn heitir en hann er við hliðina á upplýsingamiðstöðinni. Mjög gott. Fórum í Víkurprjón og skoðuðum ullardót sem var eins og, tja..... annað ullardót. Keyrðum til baka og skoðuðum Seljavallalaug. Vissum reyndar ekkert hvert við vorum að fara, sáum bara eitthvað geðveikt gil sem var eins og í Lord of the Rings. Allt fullt af sandi og ösku og afar hræðilegt. Þetta var afar mikil upplifun og vel þess virði þó við höfum ekki laugað okkur. Keyrðum svo Fljótshlíðina heim og sáum Stóra Dímon og fullt af flugvélum. Heim í bústað, éta og horfa á 30 Rock.


Ég búinn að smíða vörðukall í fjörunni við Dyrhólaey

Sunnudagur 1. ágúst: Vaknaði fyrir allar aldir og keyrði niður á Strandavöll á Hellu. Spilaði 18 holur með einhverjum pésum úr Reykjavík sem voru afar atvinnumannalegir í framkomu og hegðun, með lága forgjöf og blik í auga. Ég spilaði nú eiginlega bara betra golf en þeir og var afar tígulegur þegar ég þeysti eftir hlykkjóttum malarvegunum heim í bústaðinn aftur þar sem hún Guðrún mín beið með heitan matinn og hárið í snúð. Ókum svo um allt, Skálholt (sá Gashub Ahbed enskukennara), Reykholt, Geysi, sáum kirkju, nenntum ekki út úr bíl, Flúðir og svo í kaffi til Dóra og Sigrúnar sem voru með fellihýsi í Þjórsárdal að hætti nútímamanna. Keyrðum svo heim í bústað, átum og svo 30 Rock.

Mánudagur 2. ágúst: Tókum til og lögðum af stað heim. Keyrðum niður með Þjórsá og mikið djöfull er suðurlandið stórt, og flatt á köflum. Fullt af bæjum, rúllum, stelkur á staur og kona á hesti. Ekki opið í Sóleyjarbúð sem selur dót að hætti Dana og er á einhverjum sveitabæ og Guðrún er brjáluð í. Komum allt í einu að einhverju sem kallað var Rjómabúið á Baugstöðum, rétt utan við Stokkseyri. Maður sofandi í bíl fyrir utan en reysti sæti er við renndum í hlað. Þegar við komum út úr bílnum var hann búinn að stilla sér upp við húsið og þegar við nálguðumst hann fór hann að þilja sögur og segja okkur af þessu búi sem reyst var 1905 og starfaði til 1952. Allar vélar eru knúnar vatnsafli og allt er í gangi nema það vantar bara rjómann og smérið. Kostar 500 kr. inn og ég mæli hiklaust með þessu, frábær skemmtun. Eftir þetta stoppuðum við á Stokkseyri, skoðuðum ull og handverk, fórum í gallerí og átum svo humarsúpu á veitingastaðnum „Við fjöruborðið“. Frábær súpa og maður át á sig gat fyrir 2000 kr. Fínn bær. Rúntuðum svo á Eyrarbakka en stoppuðum ekki neitt. Næst var svo að bruna í bæinn og skoða nýjasta og eina barn Skarphéðinns og Rakelar sem ekki er búið að nefna. Fínt barn og góður endir á fínum degi.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
rómó
til hamingju með konuna
kv. Sigga Júlla
Bjarni sagði…
Já takk fyrir það, gaman að fá líka kveðjur;)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap